    <language>is</language>
Eyjafjarðarsveit
Sleppingar 2026 - Ítrekun
Ákveðið hefur verið að beitartímabil sauðfjár hefjist 15. júní árið 2026 og lýkur því þann 1. október samkvæmt samþykktum um búfjárhald.
Beitartímabil hrossa hefst þann 20.júní 2026 og lýkur því þann 10.janúar á næsta ári. ]]></description>
Fundarboð 678. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar
FUNDARBOÐ
678. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 4. júní 2026 og hefst kl. 08:00.]]></description>
Lokadagur og skólaslit
Lokadagur nemenda þetta skólaárið er fimmtudagurinn 4. júní og þann dag keyra skólabílar heim kl. 13:00. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir og er það síðasti opnunardagur þessa skólaárs.  Skólaslitin fara fram í íþróttahúsinu föstudaginn 5. júní kl. 18:00.  Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig er hægt að skila inn Unicef áheitum.  Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá.  Að sumarleyfi loknu verður Hrafnagilsskóli settur mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.  Skólastjórnendur]]></description>
Sumaropnun sundlaugarinnar
Sumaropnunartími sundlaugarinnar tekur gildi laugardaginn 30. maí.
Á virkum dögum er opið frá kl. 6.30 - 22.00
Um helgar er opið frá kl. 10.00 - 20.00
Vakin er athygli á því að nú er syndum fjórðu bekkingum, þau sem verða 10 ára á árinu, heimilt að koma í sund án fylgdar. Mikilvægt er að forráðamenn ræði við sín börn um mikilvægi þess að hlíta þeim öryggisreglum sem gilda og fara eftir fyrirmælum starfsfólks.]]></description>
Leikskólapláss
Leikskólinn Krummakot hvetur alla foreldra sem ætla að fá leikskólapláss fyrir börn sín næsta vetur til að sækja um sem fyrst. 
Svo umsóknin gildi, þarf lögheimili barnsins að vera í sveitarfélaginu þegar leikskólagangan hefst. 
Laugartröð lokuð norðanmegin
Vegna framkvæmda verður tímabundin lokun á Laugartröð að norðanverðu, frá og með morgundeginum 27. maí, en opið verður á suðurendanum!]]></description>
Verkefnið Sveitasæla hlaut foreldraverðlaun Heimilis og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í gær, fimmtudag, við hátíðlega athöfn i Herkastalanum. Verkefnið Sveitasæla hlaut foreldraverðlaunin að þessu sinni en verkefnið býður nemendum á unglingastigi tækifæri til að taka þátt í daglegum bústörfum á bænum Hrafnagili.]]></description>
Fjölskyldan saman í sumar
Í sumar vill SAMAN-hópurinn minna á mikilvægi samveru foreldra/forsjáraðila og unglinga sem lykilþátt í forvörnum. Rannsóknir hafa sýnt að samvera fjölskyldunnar er einn helsti skýringarþátturinn fyrir góðu gengi í forvörnum á undanförnum árum.]]></description>
Eyjafjarðarsveit auglýsir eftir öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra
Umsóknarfrestur er til klukkan 13:00 þann 3.júní næstkomandi. 
Leitað er að lausnamiðuðum og framsýnum leiðtoga í starf sem býður upp á spennandi tækifæri til að leiða sveitarfélagið í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, íbúa og starfsfólk.
Sumarlokun Bókasafnsins
Nú fer að líða að sumarlokun á bókasafninu. Síðasti opnunardagurinn á þessum vetri er föstudaginn 29. maí, þá er opið milli kl. 14:00 og 16:00.
Gott væri að minna skólabörnin á að skila þeim bókum sem þau eru með í láni.
Við viljum þakka öllum þeim sem nýttu sér bókasafnið í vetur. Bókasafnið opnar aftur í byrjun september.
Með sumarkveðju,
Bókaverðir]]></description>
Fermingar í Eyjafjarðarsveit vorið 2026
Átján fermingarbörn eru fermd þetta vorið í fjórum athöfnum hér í sveit. 
Allir sveitungar eru velkomnir í stóru athöfnina næstkomandi sunnudag, hvítasunnudag, í Grundarkirkju kl. 11:00.
Þar syngur kirkjukór Grundarsóknar undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Meðhjálpari er Hjörtur Haraldsson og prestur Jóhanna Gísladóttir. 
Úrslit krakkakosninga í Eyjafjarðarsveit
Ungmennaráði Eyjafjarðarsveitar barst erindi frá Umboðsmanni barna í apríl, þar sem ungmennaráð sveitarfélaga voru hvött til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínum sveitarfélögum í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla. Þrátt fyrir að erindið hafi borist með stuttum fyrirvara ákvað ungmennaráð að taka þetta verkefni föstum tökum og efna til krakkakosninga meðal nemenda unglingastigs Hrafnagilsskóla.
Fimmtudaginn 14. maí, eða tveimur dögum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, var haldinn framboðsfundur á unglingastigi þar sem fulltrúar framboða til sveitarstjórnar kynntu stefnumál sín og tóku á móti spurningum úr sal. Fyrir hönd K-lista mættu þær Linda Lárusdóttir og Sóley Kjerúlf Svansdóttir, en frá F-listanum tóku þau Hermann Ingi Gunnarsson og Berglind Kristinsdóttir þátt í fundinum.
Eftir fundinn var gengið til kosninga í Félagsborg þar sem búið var að útbúa kjörklefa og kjörseðla. Alls greiddu 54 nemendur atkvæði.  
Niðurstöður kosninganna urðu þær að F-listinn hlaut 38 atkvæði, eða 76% og K-listinn 12 atkvæði eða 24%. Einn seðill var auður og þrír ógildir.
Ungmennaráð þakkar frambjóðendum beggja lista fyrir samstarfið í þessu skemmtilega verkefni og þau vilja líka þakka Hans Rúnari Snorrasyni fyrir aðstoðina við úrvinnslu kosninganna.
Lokafrágangur hafinn í Hrafnagilshverfi – búast má við truflun á umferð
Hafin er vinna við lokafrágang meðfram Hrafnatröð, í Hrafnagilshverfi, sem standa mun fram í miðjan júní. Búast má við óþægindum vegna framkvæmdanna sem fela óhjákvæmilega í sér þrengingar, hjáleiðir og tafir í umferðinni á þessu tímabili en gullfallegu og snyrtilegu umhverfi af framkvæmdum loknum.]]></description>
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Eyjafjarðarsveit 2026
Við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 voru 907 á kjörskrá.
679 greiddu atkvæði eða 74,8%, af þeim voru 11 auðir og 1 ógildur.]]></description>
Viðbyggingar gamla leikskólans fá nýjan tilgang
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir undirbúningur á brottflutningi viðbygginga gamla leikskólans sem í dag voru fluttar á brott.]]></description>
Skemmdir á hoppubelgnum
Töluvert hefur borið á skemmdum á hoppubelgnum sem staðsettur er austan megin við íþróttamiðstöðina. Sést hefur til einstaklinga sem gera sér það að leik að fara  á hjólum upp á belginn sem stranglega er bannað.
Þetta hefur leitt af sér skemmdir, bæði lengri rifur og smærri göt, eitthvað sem sífellt verður erfiðara að gera við eftir því sem þeim fjölgar.
Við viljum beina því til forráðamanna barna og unglinga að ræða málin við þau og brýna fyrir þeim að þetta sé ekki heimilt, viljum við hafa belginn í gangi áfram.
Starfsfólk íþróttamiðstöðvar
Efri hæð Hrafnagilsskóla og íþróttamiðstöðvar tekin að rísa
Nú hefur B.Hreiðarsson tekið að reisa efri hæð viðbyggingar Hrafnagilsskóla sem að auki mun hýsa stækkun íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar með glæsilegri líkamsræktaraðstöðu.]]></description>
Ársreikningur 2025 lagður fram til síðari umræðu í sveitarstjórn
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 191,7 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 200,6 m.kr. Rekstrargjöld A og B hluta námu samtals 1.732,9 m.kr. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu tæpum 2,0 milljörðum króna ...]]></description>
Fundarboð 677. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar
FUNDARBOÐ
677. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, miðvikudaginn 13. maí 2026 og
hefst kl. 08:00.]]></description>
Eyjafjarðarsveit auglýsir eftir tilboðum í athafnalóðir á Bakkaflöt
Um er að ræða spennandi tækifæri til uppbyggingar á athafnalóðum nærri vaxandi íbúðarbyggð í Hrafnagilshverfi. Nú stendur yfir gatnagerð á svæðinu og er áætlað að henni ljúki sumarið 2027, sem mun styrkja aðgengi og skapa góðar forsendur fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.]]></description>