Hreyfing og vellíðan – fyrir okkur öll
Eyjafjarðarsveit er Heilsueflandi samfélag og vill skapa umhverfi þar sem heilsa, vellíðan og hreyfing eru eðlilegur hluti af daglegu lífi. Það á jafnt við um íbúa sveitarfélagsins og starfsfólkið okkar.
Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan. Með heilsutengdum hlunnindum vill Eyjafjarðarsveit auðvelda starfsfólki að huga að eigin heilsu, finna hreyfingu við sitt hæfi og stuðla að góðri líðan í og utan vinnu.
Starfsfólki Eyjafjarðarsveitar standa eftirfarandi heilsuhlunnindi til boða:
🏊 50% afsláttur af árskorti hjá ÍME
Starfsfólk Eyjafjarðarsveitar fær 50% afslátt af árskorti hjá Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar (ÍME).
Afslátturinn er tengdur rafrænu kortakerfi ÍME í gegnum esveitarkort.is og reiknast sjálfkrafa þegar starfsmaður skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og kaupir árskort.
Markmiðið er að gera sund og almenna líkamsrækt enn aðgengilegri fyrir starfsfólk og hvetja til reglulegrar hreyfingar. Ef afslátturinn virkar ekki vinsamlegast hafið samband við sundlaug@esveit.is.
🏃 15.000 kr. heilsuræktarstyrkur
Starfsfólk fær ennigð 15.000 kr. heilsuræktarstyrk á ári gegn framvísun kvittunar. En kvittuninni er skilað á Skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.
Styrkurinn gefur starfsfólki svigrúm til að velja þá heilsurækt sem hentar hverjum og einum og styður þannig við fjölbreyttar leiðir til hreyfingar og heilsueflingar.
🏀 20% afsláttur af leigu íþróttahúss
Starfsfólk Eyjafjarðarsveitar fær 20% afslátt af stakri leigu á íþróttahúsinu.
Afslátturinn er hugsaður til að auðvelda starfsfólki að nýta íþróttahúsið til hreyfingar og samveru, hvort sem það er með fjölskyldu, vinum eða öðrum hópum. Til að fá afsláttinn er látið vita þegar greitt er í andyri Íþróttamiðstöðvarinnar.
Heilsueflandi Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Markmiðið er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, vellíðan og góðum lífsgæðum.
Heilsuhlunnindi starfsfólks eru einn liður í þeirri vegferð. Með þeim viljum við gera hreyfingu að auðveldari og aðgengilegri kosti og um leið leggja okkar af mörkum til að Eyjafjarðarsveit sé heilbrigður, jákvæður og eftirsóknarverður vinnustaður.