Íþróttavika - Yoga Nidra tími

Yoga Nidra tími í tilefni af Íþróttaviku Evrópu dagana 23.-30. september. Yoga Nidra er leidd djúpslökun sem getur losað um streitu, bætt svefn og skapað jafnvægi. Dýnur, púðar og teppi á staðnum. Einnig velkomið að koma með eigin dýnu, kodda eða teppi.

Kennari er Ingileif Ástvaldsdóttir yogakennari.

Sjá viðburð á Facebook. 

Frítt er í sund, líkamsrækt og á alla viðburð í Íþróttaviku Evrópu. Sjáðu dagskrá á fleiri viðburði hér