FUNDARBOÐ
655. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 8. maí 2025 og
hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2024 - Fyrri umræða - 2505001
Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2024 lagður fram til fyrri umræðu. Á fundinn
mætir Jón Ari Stefánsson frá KPMG og fer yfir reikninginn.
2. Birkiland 4 L236171 - beiðni um breytingu á hæðarkvóta - 2504027
Fyrir fundinum liggur erindi frá hönnuði f.h. lóðarhafa að Birkilandi 4, þar sem óskað er
eftir breyttum hæðarkvóta á einbýlishúsi sem fyrirhugað er að byggja á lóðinni.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en
málshefjanda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu.
3. Hranastaðir L152652 - umsókn um byggingarreit v. varphænuhúss - 2504028
Fyrir fundinum liggur erindi frá landeiganda þar sem óskað er eftir leyfi fyrir byggingu
varphænuhúss. Erindinu fylgja teikningar frá Balsa ehf teiknistofu dags. 26.03.2025
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
heimild verði veitt fyrir byggingarreit undir fyrirhugað húsnæði.
4. Víðigerði lóð 2-3 slóð, Víðigerði II lóð 1-4 og Víðgerði II - 2504035
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni, dags. 15.01.2025, þar sem
verið er að gera leiðréttingu á lóð sem stofnuð var í kringum slóða að Víðigerði II lóðum
2 og 3, breyting á afmörkun á Víðigerði II lóð 1 ásamt uppfærslu á hnitum á Víðigerði II
lóðum 1-4.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki
verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á
grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
5. Borgarhóll I - umsókn um byggingarreit v. stálgrindarhúss (geymslu) - 2504040
Fyrir fundinum liggur erindi frá landeiganda að Borgarhóli I þar sem óskað er eftir að
reisa stálgrindarhús sem fyrirhugað er að nýta sem skemmu/geymslu. Með erindinu
fylgja teikningar frá Ævari Guðmundssyni dags. 24.03.2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir
skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast
andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
6. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 - Kynning tillögu á vinnslustigi (Breyting á
aðalskipulagi) - 2504041
Akureyrarbær óskar eftir umsögn vegna tillögu á vinnslustigi vegna breytingu á
Aðalskipulagi Akureyrarbæjar.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og gerði ekki athugasemd við það.
7. Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK - 2501006
Kynning skipulagslýsingar á aðalskipulagsbreytingu fyrir Brúarland lauk 3. apríl sl. og
bárust 11 erindi á kynningartímabilinu.
Skipulagsnefnd fjallaði um málið á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum erindum við gerð
skipulagstillögu.
8. Stekkjarhóll lnr 234754 - nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi - 2402011
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi
vegna íbúðarlóðar í landi Stekkjarhóls. unnin af Landslagi, dags. 8. apríl 2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
skipulagslýsingu verði vísað í kynningarferli skv. 1. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
9. Rein III L176551 - grenndarkynning byggingarleyfisumsóknar, einbýlishús -
2504044
Fyrir fundinum liggur byggingarleyfisumsókn frá landeiganda, vegna byggingu
einbýlishúss á lóðinni Rein III L176551. Þar sem ekkert deiliskipulag er á svæðinu óskar
byggingarfulltrúi umfjöllunar skipulagsnefndar og staðfestingar á byggingarreit.
Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir unnir af M2hús ehf. dags. 4.8.2025.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum bendir á að þörf sé á deiliskipulagi
til að heimila byggingu á reitnum. Þá bendir nefndin á að fyrirhuguð bygging fellur að
hluta til utan við landnotkunarreit íbúðarsvæðis ÍB23 í aðalskipulagi og nauðsynlegt sé
að aðlaga það í aðalskipulagsferli sveitarfélagsins sem nú er í gangi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði heimilað að vinna
deiliskipulag vegna ofangreindra áforma.
og lagði til við sveitarstjórn að
10. Ytri-Varðgjá deiliskipulag íbúðarsvæðis (0623/2023) - 2308016
Fyrir fundinum liggur fyrir minnisblað frá skipulagshönnuði vegna málsmeðferðar
deiliskipulags íbúðarbyggðar í Ytri-Varðgjá.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 431. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að ekki
verði fallist á athugasemdir skipulagsstofnunar um fjarlægðartakmarkanir frá vegi og
eftirfarandi rök verði færð fyrir því:
"Í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 er svæðið skilgreint sem íbúðarsvæði og
er sú landnotkun sýnd ofan Veigastaðavegar 20 m frá veginum og því er gert ráð fyrir að
íbúðarbyggðin verði mun nær veginum en 100 m.
Fjöldi fordæma eru fyrir staðsetningu íbúðar- og frístundahúsa innan 100 m frá
Veigastaðavegi og hefur undanþága fengist frá viðeigandi ráðuneyti í þeim tilfellum.
Aðliggjandi íbúðarsvæði t il suðurs (Kotra, samþykkt 2022 og Eyrarland, samþykkt
2023) eru með 7 byggingarreiti fyrir íbúðarhús sem eru staðsettir í 50 m frá
Veigastaðavegi. Hús á flestum þessum lóðum eru þegar byggð eða í byggingu. Í
deiliskipulagi Kotabyggðar (samþykkt 2013) norðan Ytri-Varðgjár eru 9 byggingarreitir
fyrir frístundahús innan 100 m frá Veigastaðavegi og þar af eru 4 hús um 25 m frá
veginum. Handan Veigastaðavegar er deiliskipulag frístundabyggðarinnar Vaðlaborgir A
en þar eru 6 byggingarreitir frístundahúsa 50-60 m frá veginum.
Til að gæta samræmis eru byggingarreitir íbúðarbyggðar í landi Ytri-Varðgjár staðsettir í
50 m frá Veigastaðavegi vegna fjölda fordæma. Sveitarfélagið telur brotið gegn
jafnræðisreglu að heimila landeigenda ekki að nýta sitt land með sama hætti og
nærliggjandi landeigendur. Þá verður yfirbragð byggðarinnar heilsteyptara ef samræmi
er í fjarlægð húsa frá Veigastaðavegi. Umferð um Veigastaðaveg hefur verið takmörkuð
og hraði dreginn niður í 70 km/klst. Skv. auglýstri tillögu að rammahluta aðalskipulags
er gert ráð fyrir að hámarkshraði á Veigastaðavegi verði lækkaður enn frekar og dregin
niður úr 70 km/klst í 50 km/klst og því eru áhrif á hljóðvist mjög takmörkuð þó byggt
verði um 50 m frá veginum.
Í auglýstri tillögu að rammahluta aðalskipulags Vaðlaheiðar er gert ráð fyrir að
lágmarksfjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá tengivegunum Knarrarbergsvegi og
Veigastaðavegi sé 50 m og er rökstuðningur sá að hraði hafi verið dregin niður á
Veigastaðavegi og að umhverfið beri með sér að vera þéttbýl byggð þar sem eðlilegt er
að hraði sé takmarkaður.
Í skipulagsreglugerð er kveðið á um að ekki skuli staðsetja íbúðir eða frístundahús nær
stofn- og tengivegum en 100 m eins og þeir eru skilgreindir í aðalskipulagi. Sveitarstjórn
telur ekki rétt að takmarka möguleika á uppbyggingu innan 100 m frá Veigastaðavegi á
grunni gildandi aðalskipulags.
Í gildandi aðalskipulagi er áhersla lögð á vernd landgæða eða eins og segir: Mikil áhersla
er lögð á nauðsyn þess að ræktuðu landi sem og hentugu og vel ræktanlegu
landbúnaðarlandi verði ekki ráðstafað undir íbúðarbyggð. Þá ber einnig að varðveita
svæði sem hafa mikla sérstöðu vegna náttúru, gróðurs eða dýralífs og við gerð
byggingar- og framkvæmdaáætlana skal gefa öllum þeim svæðum gaum sem kunna að
hafa varðveislu- og náttúruverndargildi burtséð frá fyrri ákvörðunum.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að land sem nýtt á sem skilvirkastan hátt og að gott
ræktarland njóti verndar. Með því að nýta land á belti 100 m - 50 m frá Veigastaðavegi í
stað þess að brjóta annað land undir íbúðarbyggð er því verið að koma til móts við
ákvæði jarðalaga um vernd ræktarlands og skilmála aðalskipulags."
Þá verði skipulagsfulltrúa falið að fullnusta gildistöku deiliskipulagsins samkvæmt 1.
mgr. 42.gr skipulagslaga númer 123/2010.
11. Fagrabrekka L237823 - byggingarleyfi einbýlishús - 2409016
Byggingarfulltrúa hefur borist uppfærð umsókn frá eigendum að lóðinni Fögrubrekku
L237823 þar sem sótt er um stækkum á byggignarreit um 14m til austurs. Ekki er
deiliskipulag í gildi á svæðinu og því óskar byggingarfulltrúi umsagnar skipulagsnefndar
um erindið.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 431. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að
erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en
málshefjanda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu.
12. Markaðsstofa Norðurlands - Áskorun sveitarfélaga á Norðurlandi til stjórnvalda - 2504037
Lögð fram drög að áskorun sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra
vegna Akureyrarflugvallar.
13. Þormóðsstaðir - 2503011
Skírnir Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Arctic Hyrdri, mætir á fund sveitarstjórnar til
að kynna hugmyndir félagsins á orkuöflun í Eyjafjarðarsveit.
Fundargerðir til kynningar
14. Norðurorka - Aðalfundur 9. apríl 2025 - 2504036
Fundargerð aðalfundar Norðurorku haldinn 9. apríl 2025 lögð fram til kynningar.
15. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 977 - 2504038
Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til
kynningar.
16. Norðurorka - Fundargerð 309. fundar - 2504042
Fundargerð 309. stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.
17. Markaðsstofa Norðurlands - fundargerð stjórnar 17.03.2025 - 2504043
Fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands dagsett 17. mars 2025 lögð fram til
kynningar.
18. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 430 - 2504006F
Fundargerð 430. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
19. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 431 - 2504008F
Fundargerð 431. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
20. Framkvæmdaráð - 159 - 2504005F
Fundargerð 159. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
21. Atvinnu- og umhverfisnefnd - 15 - 2504004F
Fundargerð 15. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar lögð fram til kynningar.
22. Velferðar- og menningarnefnd - 17 - 2504003F
Fundargerð 17. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
05.05.2025
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.