Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir starfsmanni tímabundið í móttökueldhús

Fréttir

Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir starfsmanni tímabundið í móttökueldhús.

  • Um er að ræða 100% stöðu eða e.t.v tvær 50% stöður.
  • Æskilegt er að byrja 15. febrúar fram að sumarlokun. Með möguleika á áframhaldandi ráðningu við önnur störf innan skólans.

Allur matur er eldaður í eldhúsinu í Hrafnagilsskóla þannig að það þarf að taka á móti matnum og græja fyrir bæði matsal og vagna. Síðan er það frágangur og uppvask sem og að sjá um allan þvott, þar sem að hann er mikill á svona stóru heimili.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Metnaður og áhugi til að taka þátt í góðu skólastarfi. 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is