Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsmann í eldhús – framtíðarstaða (móttökueldhús)

Fréttir

Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsmann í eldhús – framtíðarstaða (móttökueldhús)

Um er að ræða 100% stöðu starfsmanns í eldhúsi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:
• Reynsla af eldhússtörfum
• Metnaður og áhugi
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar við börn, foreldra og samstarfsmenn

Sjá nánar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar www.esveit.is eða http://krummakot.leikskolinn.is/.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2022. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is.