Leikskólinn Krummakot í Hrafnagilshverfi leitar eftir starfsfólki í framtíðarstörf
- Leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% ótímabundna stöður á deild.
- Starfsfólk í afleysingu inn á deild.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 86 dásamleg börn sem eru á aldrinum
1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands eða Einingu Iðju.
Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem að við flytjum í ágúst og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hæfni samkvæmt reglugerð 1355/2022 um almenna og sérhæfða hæfni kennara og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir eða Sigþóra Baldursdóttir í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is sigtora@krummi.is