Auglýsingablaðið

950. TBL 02. ágúst 2018 kl. 10:57 - 10:57 Eldri-fundur

Umf. Samherjar og Dalbjörg á Handverkshátíð 2018
Nú er tæp vika í Handverkshátíð og eru skráningar í fullum gangi á vaktir í veitingasölu og eldhús. Á heimasíðu félagsins www.samherjar.is, er hægt að smella á hnapp til að opna skráningarsíðuna fyrir vaktirnar.
Skúffukökur og gulrótarkökur eru vel þegnar frá heimilum í sveitinni. Afhending í skólaeldhús eftir kl. 16:00, miðvikudaginn 8. ágúst.
Eldhús:
Þrískiptar vaktir alla dagana (fim-sun)
Æskilegt 5 á hverja vakt
09:00 – 13:00
12:00 – 16:00
15:00 – 20:00
Ein vakt miðvikudaginn 8. ágúst

Veitingasala:
Tvískiptar vaktir alla dagana (fim-sun)
Æskilegt 12 á hverja vakt
11:00 – 15:30
15:00 – 19:30
Krakkar sem eru að byrja í 8. bekk eru gjaldgengir í veitingasölu.
Ein vakt miðvikudaginn 8. ágúst

Krakkar:
Krakkarnir sjá um að vakta innganga og ferja brauð milli eldhúss og veitingasölu
Vaktaskipti á heila tímanum, róterað á milli vaktstöðva sem eru 6 talsins
11:00 – 19:00
Æskilegt er að sem flestir krakkar taki þátt en ekki þarf að vera allan daginn.

Sjáumst á Handverkshátíð 2018
Stjórn Umf. Samherja

 

 

Bændadagar í Eyjafjarðará eru eftirtaldir:

7. ágúst og 11. september
Veiðireglur eru:
Sleppa verður ÖLLUM veiddum bleikjum á veiðisvæðum 3, 4 og 5.
Heimilt er að hirða 1 bleikju undir 50 cm á vakt á svæðum 0, 1 og 2.
Heimilt er að hirða 2 urriða/sjóbirtinga á stöng á vakt á öllum svæðum.
Nánari upplýsingar veitir Rósberg í síma 820-1107.

 

 

 

Smámunasafnið
Næstkomandi sunnudag verður fríhelgi verslunarmanna haldin hátíðleg á Smámunasafni Sverris Hermannssonar. Kvenfélagið Hjálpin verður í síðasta skiptið í sumar með sitt glæsilega kaffihlaðborð á kaffistofu safnsins milli kl. 14:00 og 17:00 og kostar einungis litlar 2.000 kr. fyrir manninn.
Verið hjartanlega velkomin, stúlkurnar á Smámunasafninu.

Til sölu er forláta hnakkur, dýna, múll, beisli og hjálmur svo og léttir rafmagnsstaurar.Allt selt í einum díl. Upplýsingar í síma 8671471. Svana.

Snyrtistofan Sveitasæla
Verð með lokað föstudaginn 3. ágúst og Þriðjudag og miðvikudag eftir verslunarmannahelgi, byrja fimmtudaginn 9.ágúst. Endilega hringið eða sendið póst inná heimasíðunni á facebook til að panta tíma.
Er með opið mánudaga og miðvikudaga 12.00-18.00, þriðjudaga og fimmtudaga 9.00-15.00 og föstudaga 9.00-14.00 Allar helstu snyrtimeðferðir í boði í notalegu umhverfi í sveitinni.
Er með hágæðavörur frá Comfort Zone. Þær vörur eru án parabena, mineral olíu, silikons, litarefna, dýraafurða og MIT (rótvarnarefnis).
Gjafabréf til sölu, þú velur ákveðna meðferð eða upphæð að eigin vali. Tilvalin gjöf við öll tækifæri. Best er að hringja í mig ef þið viljið nálgast gjafabréf.
Tímapantanir í síma 833-7888 Milli kl. 9.00-17.00 á daginn. Eftir kl 17.00 svarar símsvari og þá er um að gera að tala inná hann og ég mun hafa samband við fyrsta tækifæri.
Elín Halldórsdóttir snyrtifræðingur og danskennari.

REIÐSKÓLINN Í YSTA-GERÐI.
Haustönnin 2018 er 10 skipti frá 11.september – 7.desember. (frí viku 40, 43 og 47) Kennt er í reiðskemmunni í Ysta-Gerði, Eyjafjarðarsveit. Kennari er Sara Arnbro, mentaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Kennt verður á þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum Kl 18 og 18.45. Árgang 2014 og eldri. Fullorðnir líka! Max 5 nemendur í hvern hóp. Verð á haustönn: 35.000kr. Innifalið er hestar, reiðtygi, öryggisvesti, hjálmar og kennsla.
Foreldrar eru velkomnir inn í kaffistofu á meðan, ávallt heitt á könnunni.

Aloe Vera frá Forever Living Products
Nýr og enn þá betri aloe vera drykkur komin, án allra rotvarnarefna og í umhverfisvænum umbúðum. Sá allra hreinasti á markaðnum. Einnig mjög breitt úrval af hár- og húðvörum, bætiefnum og þyngdarstjórnunarvörum. Frí heimkeyrsla á Eyjafjarðarsvæðinu
Sigurlaug Helgadóttir, Forever Business owner, sigurlaug71@simnet.is, S:893-5949

Getum við bætt efni síðunnar?