Auglýsingablaðið

376. TBL 06. júlí 2007 kl. 13:22 - 13:22 Eldri-fundur

Frá skrifstofu Eyjafjarðarsveitar

Skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna
frá og með 23. júlí. til og með 8. ágúst n.k.

Sveitarstjóri




Smámunasafnið um helgina

Sunnudagurinn 8.júlí – íslenski safnadagurinn
Guðrún Hadda verður með örnámskeið í handstúkuprjóni, allt efni á staðnum.
Guðrún Steingríms sýnir miðaldafatnað, hvernig bregða á bönd og slyngja.
Endilega kíkið svo í geymsluna og athugið hvort þið eigið ekki eitthvað sem
gæti átt erindi á flóamarkaðinn “Opnum skottin”
Opið alla daga kl. 13-18



Frá Sundlaug Hrafnagilsskóla

Sumaropnunartími: frá og með 1. júní.
Alla virka daga: 6:30 - 9:30 og 13:00 – 22:00.
Helgar: 10:00 – 18:00.

Sundlaug Hrafnagilsskóla




- Iðunnarkonur -

þriðjudagskvöld í Laugarborg. 10. júlí kl 20:00.
Fínt að hafa saumavélina með, en ekki nauðsynlegt.
Kaffi á könnunni.

Yfirsaumakerlingin




VARúð - MYNDLISTASýNING

Víðátta601 opnar laugardaginn 7.júlí kl.14:00.

Eyjafjarðará við Kristnes.



Athugið

íslenskir hænuungar til sölu

Upplýsingar gefur Andrés á Bringu í síma 463 1242





Auglýsing
um deiliskipulag í Eyjafjarðarsveit.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997:

1. Deiliskipulag skógræktarlóða í landi Saurbæjar.
Tillagan gerir ráð fyrir 32 afmörkuðum skógræktarspildum á ca. 155 ha óræktuðu svæði úr landi Saurbæjar og eru 25 spildur ætlaðar til útleigu til skógræktar. Skógræktarfélag Eyfirðinga leigir svæðið til 50 ára af landbúnaðaráðuneytinu. Heimilt verður að byggja aðstöðuhús á spildunum, sem ekki skulu vera stærri en 20 ferm. Aðkoma verður um sameiginlega heimreið að Saurbæ og Hálsi.

2. Deiliskipulag fyrir 2 íbúðarhús í landi þórustaða 2.
Svæðið liggur milli heimreiðar að þórustöðum II og VII og lands áttunnar. Svæðið er 2.3 ha og þar er gert ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum. Aðkoma verður frá þjóðvegi 829 (Eyjafjarðarbraut eystri).

3. Deiliskipulag frístundasvæðis úr landi Bjarkar.
Svæðið, sem er nefnt Signýjarstaðir, liggur vestan þjóðvegar 829 (Eyjafjarðar-brautar eystri) neðan Háuborgar, sem er austan þjóðvegarins. Svæðið er 1.7 ha að stærð og þar verður heimilt að byggja 3 frístundahús.

Deiliskipulagstillögur þessar eru í samræmi við tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005 – 2025 sem auglýst hefur verið og er nú til afgreiðslu Skipulagsstofnunar og staðfestingar umhverfisráðherra. Deiliskipulagstillögurnar verða ekki samþykktar fyrr en aðalskipulagið hefur verið staðfest. þær verða til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Syðra-Laugalandi frá og með fimmtudeginum 12. júlí 2007 til og með fimmtudagsins 23. ág. 2007. Frestur til að skila athugasemdum við tillögurnar er til 6. sept. 2007 og skal þeim skilað á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar fyrir lok þess dags. þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.

Eyjafjarðarsveit 5. júlí 2007.
Sveitarstjóri


Sagan af því hvers vegna Eyfirðingar
héldu sig vera meiri jólasveina en Mývetninga

Sem alkunna er segir sagan að langt inn í fyrndinni hafi Grýla farið milli bæja og gripið upp óknyttabörn. Erfitt var að henda reiður á hvar hana bar niður og nær ómögulegt að verjast komu hennar.
Börnum í Eyjafirði stóð af henni mikill stuggur og þeir sem eldri voru töldu hana, fyrir margra hluta sakir, aldrei langt undan og litu því á hana nánast sem eina sinna ættmæðra. þessi gamla barnafæla hafði sem sagt á sér aðra hlið og lítt skárri þeirri þekktustu að sækjast í ungviðið. Einmitt þessi “hin hlið” var orsök þess að Eyfirðingar, þeir sem slitið höfðu barnsskónum, töldu sig standa henni nær og nánast sverja sig í ætt hennar. Grýla hafði nefnilega á höfði ógnarmikið og hamslaust hárstrí, ullarkennt og torfkleprað. úr því drógust loðpungar langir er náðu allt til jarðar, en þar áttu þeir til að verða jarðlægir. Gátu þeir þá skriðið í jörð langt frá þeim stöðum sem Grýla hélt sig. Smugu þeir undir stokka og steina en á endanum skutu þeir upp loðinlumpunni og þá oftar en ekki þar sem af þeim varð ami. þessar loðinlumpur Grýlu voru algengar inn Eyjafjörð, komu gjarnan upp á túnum og engjum þar sem bændur voru í heyönnum nú eða þar sem grandalausar bændakonur bjástruðu innan dyra. þar sem loðinlumpan hafði þann eiginleika að loða við hold það, er hún hitti fyrir urðu þegar fram liðu stundir Eyfirðingar og niðjar þeirra hærðari en gengur. Var aðkoma loðinlumpanna sjaldnast nálægt höfuðbeini viðkomandi heldur á þeim stöðum kroppsins öðrum er óprýði þótti að. Ekki þótti greindarlegt í Eyjafirði að fleygja sér flötum á tún eða lyfta höndum í ógáti nú eða standa þar gleiður sem uppkomu lumpunnar var að vænta. Ein er til sögn af bónda sem heldur þótti smár til verka með eina kú á fóðrum. Hafði hann jafnan lokið bústörfum árla dags meðan meira dugandi bændur gengu til verka. Segir sagan að þá hafi hann lagt lófa á torfusnepil úti fyrir og beðið í dugleysi daglangt uns loðinlumpu rak í lófa hans og hann upp frá því talinn bænda “loðnastur um lófana” í Eyjafirði.
En eitt vissu Eyfirðingar ekki að svo gátu loðlumpur Grýlu legið, að milli sýslna bærust og fyrir löngu alþekkt að ættbogi þeirrar gömlu liggi einkum í sýslum austur en bændur eyfirska má enn í dag sjá á handahlaupum um jarðnæði sín.

Framhald að viku liðinni ...
Getum við bætt efni síðunnar?