Árshátíð unglingastigs

Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 17. janúar nk. Hún hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 23:30. Skólabílar aka heim að balli loknu.

Árshátíðin hefst á tónlistaratriði og að því loknu sýna nemendur í 8., 9. og 10. bekk stytta útgáfu af söngleiknum ,,Með allt á hreinu“ í leikstjórn kennara unglingastigs. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu.

Verð aðgöngumiða er 800 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.500 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu. Ágóðinn rennur allur til nemenda, bæði í ferðasjóð 10. bekkjar og til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og fleira fyrir nemendur unglingastigs.

 Athugið að ekki er posi á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nemendur á unglingastigi.