Englareiki 1& 2

Engla Reiki 1&2 vinnustofa
Engla Reiki er dásamlega mjúk en kröftug heilunaraðferð sem við getum notað dags daglega fyrir okkur sjálf, fjölskyldu, vini og dýrin okkar, sem og boðið viðskiptavinum. Námskeiðið hentar öllum, hvort sem er reyndum meðferðaraðilum eða þeim sem hafa áhuga á að nota heilun fyrir sig.
Þessi vinnustofa kennir hina mögnuðu heilunaraðferð sem Engla Reiki er og er kennt yfir föstudagskvöld 17.30-21.30, laugardag 9.30-17.30 og sunnudag 9.30-16.30. Þátttakendur taka á móti 1. og 2. gráðu Engla Reiki á þessum tíma og fá praktíska reynslu í nokkrum mismunandi meðferðaraðferðum.
Samstillingin (attunement) sem tengir þátttakendur við heilunarenglana sína og þeir vinna síðan með hverjum einstaklingi þar eftir, inniheldur Reiki tákn sem eru samstillt gegnum tíðni englanna. Þessi tákn voru gefin mannkyninu af St. Germain á tímum Atlantis. Ekki er þörf á að læra táknin.
Þessi vinnustofa gefur þér:
- Vinnu með karma þar sem unnið er með að klippa á tengsl sem ekki þjóna okkur og hreinsun englanna fyrir hverja innstillingu.
- Fulla innstillingu á Engla Reiki fyrsta og annað stig.
- Praktíska reynslu af heilun þar sem miðlað er heilunarorku englanna, þriðja auga heilun, heilun með meisturum og vetrarbrautarheilurum, og fjölvídda- og fyrri lífa heilun.
- Leiðsögn varðandi sjálfsheilun, fjarheilun, að meðhöndla ófrískar konur, börn og dýr.
- Praktísk ráð varðandi heilunarmeðferðir.
- Master kristal sem heldur heilunartáknum englanna.
- Handbók með öllum upplýsingum á íslensku.
- Fræðslu og hugleiðslu á myndbandi um orkustöðvarnar 12 en það er undirbúningur fyrir námskeiðið ásamt hreinsunarferli.
- Táknin sjö sem gefin voru eru virkjuð á tíðni englanna í gegnum hin sjö stig forms og guðlegs forms gegnum Metatron erkiengil.
- Samstillingu við englaríki ljóssins í elleftu víddinni í gegnum Metatron erkiengil.
- Skírteini um að þjálfun sé lokið á fyrsta og öðru stigi Engla Reiki.
Sem heilari sem vinnur á þennan hátt með englunum gerir þú sjálfum þér, mannkyninu og plánetunni gott.
Námskeiðið kostar 47.000 og innifalið í því er kristall og prentuð handbók á íslensku. Til að staðfesta þátttöku þarf að senda tölvupóst á info@almahronn.com. Greiða þarf 10.000 króna staðfestingargjald sem er óafturkræft. Lágmarksfjöldi þátttakenda er 8.
Námskeiðið er haldið á Vökulandi í Eyjafirði og verður mögulegt að fá hádegimat á staðnum yfir helgina

Upplýsingar á facebook: https://www.facebook.com/events/948446389195945/