Fjallahjólanámskeið fyrir krakka

Lýðheilsunefnd stendur fyrir og býður áhugasömum grunnskólanemendum í Eyjafjarðarsveit á fjallahjólanámskeið fyrir krakka í samstarfi við hjólreiðafélag Akureyrar (HFA) fimmtudaginn 23. september klukkan 17:00-19:00 í tilefni hreyfiviku UMFÍ.
Námskeiðið hefst við Hrafnagilsskóla.

Lýsing: Farið verður yfir grunnatriði fjallahjólreiða. Byrjað á yfirferð á hjólinu sjálfu og hvaða atriði þurfa að vera í lagi þannig að hjólið sé öruggt. Síðan verða verklegar æfingar undir leiðsögn á plani, farið yfir rétta stöðu á hjólinu, hvernig farið er í gegn um beygjur og hvernig á að bremsa. Að því loknu verður farið yfir þrautir sem finnast í nærumhverfinu.

Kennarar: Elín Auður Ólafsdóttir, Magnús Smári Smárason, Sara Ómarsdóttir.

Hámarksfjöldi þátttakenda 21.
Aukanámskeið verður í boði ef fjöldi áhugasamra fer umfram hámarksfjölda.
Skráning á esveit@esveit.is með yfirskriftinni Fjallahjólanámskeið.

 

Þátttaka er ókeypis og í boði lýðheilsunefndar.