Jólahlaðborð Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit

Jólahlaðborð Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit verður laugardaginn 30. nóvember í mötuneyti Hrafnagilsskóla kl. 19:00, húsið opnað kl. 18:30. Allir koma með lítinn jólapakka, góða skapið og 6.000 kr. Ath. enginn posi. Látið vita um þátttöku fyrir 26. nóvember til Þuríðar 463-1155/867-4464 eða til Völu 463-1215/864-0049.
Skemmtinefnd.