Jólastemning á Smámunasafninu 4. desember

Opinn dagur í sveitinni. Það verður frítt inn á Smámunasafnið, ilmandi vöfflur og kakó, jólalögin munu óma, fallegt handverk í Smámunabúðinni sem er tilvalið í jólapakkann, dagatölin fyrir 2023 frá Blúndum og blómum, bókin Drífandi daladísir, saga kvenfélagsins Hjálparinnar í 100 ár, og margt fleira. Saurbæjarkirkja verður opin. Komum og njótum aðventunnar á einstöku safni. Verið hjartanlega velkomin.
Stúlkurnar á Smámunasafninu.