Leiksýningin Blúndur og blásýra í Freyvangsleikhúsinu

Verkið Blúndur og blásýra er svört kómedía eftir Joseph Kesselring og hefur það verið sýnt víða um land undanfarin ár.
Systurnar Abby og Martha búa í ættarhúsinu ásamt bróðursyni sínum sem gengur ekki alveg heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð sem vilja allt fyrir alla gera. Annar bróðursonur þeirra býr skammt frá og nýtur góðs af gestrisni systranna. Svarti sauðurinn í fjölskyldunni kemur heim með miður göfug áform og ýmis konar misskilningur kemur upp, því engan grunar að systurnar stundi það að eitra fyrir fólki og að tólf manns séu grafnir í kjallaranum í þeirra.
Leikritið var frumsýnt á Broadway árið 1941 og var þar á fjölunum í tæp þrjú ár við miklar vinsældir og hlaut mikil lof áhorfenda. Kvikmynd eftir leikritinu kom út 1944 og hlaut einnig mikil lof. Verkið hefur þótt mjög vinsælt í íslensku leiklistarflórunni, enda bráðskemmtilegt og drepfyndið.
Miðasala er á tix.is og í síma 857-5598 kl. 14-17 alla virka daga.
Nánari upplýsingar er að finna á vef félagsins www.freyvangur.is.