Messa í Saurbæjarkirkju

Verið öll velkomin í Saurbæjarkirkju næstkomandi sunnudag kl. 13:00. 
Kór Laugalandsprestakalls gleður okkur með fallegum söng og fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og prestur Jóhanna Gísladóttir. Sóknarnefnd býður kirkjugestum til kaffisamsætis að hætti Hjálparinnar að messu lokinni í Sólgarði. 

Samveru sunnudagaskólans hefur verið frestað til sunnudagsins 8. desember. 
Þann dag verður aðventustund yngstu barnanna sem verður betur auglýst síðar.