Sportversmót 1. - 4. bekkjar í körfubolta

Yngstu körfuknattleiksiðkendur UMF Samherja munu keppa á Sportversmótinu laugardaginn 21. maí. Samherjar senda til leiks tvö lið í 1. - 2. bekk og tvö lið í 3. - 4. bekk. Mótherjarnir koma frá Tindastóli á Sauðárkróki og Þór Akureyri. 

Mótið hefst kl. 10.15 og lýkur kl. 14.00.

Sveitungar eru boðnir velkomnir að sjá okkar yngsta og besta fólk keppa í körfubolta, þar sem leikgleði og jákvæður andi ræður ríkjum.