Sunnudaginn 11. desember hefði Rósa á Höskuldsstöðum orðið 93 ára hefði hún lifað.

Sunnudaginn 11. desember hefði Rósa á Höskuldsstöðum orðið 93 ára hefði hún lifað. Hún kvaddi okkur 31. júlí 2020 og af þekktum ástæðum var engin erfidrykkja.

Rósa hefði nú viljað bjóða sveitungum sínum, ættingjum og vinum til veislu. Það vitum við öll. Þess vegna ætlum við að heiðra minningu hennar sunnudaginn 11. desember kl. 17:00 í Laugarborg. Þar verða kaffiveitingar, harmonikkuleikur, dans og ljúf samvera.

Kær kveðja, fjölskyldan frá Höskuldsstöðum.