Tilboð á Lamb Inn á næstunni

Þriðjudagur 1. febrúar
Við verðum með hádegismat með stuttu erindi um áhugaverð efni á þriðjudögum í vetur kl. 12:00. Súpa, samloka, kaffi og smákökur á 2.500. Húsbóndinn, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, ríður á vaðið og fjallar um áburðarframleiðslu á Íslandi en hann var verkefnastjóri hjá Hkjarna sem kannaði möguleika á áburðarframleiðslu við Húnaflóa á árunum 2008 til 2009.

Vinsamlegast pantið á hádegisverðinn í síma 463-1500 eða lambinn@lambinn.is.