- 84 stk.
- 15.09.2008
Laugardaginn 13. september 2008 var haldin hátíð í Eyjarjarðarsveit sem bar heitið Víga-Glúmur, til heiðurs fyrrum íbúa sveitarinnar,
sjálfum Glúmi Eyjólfssyni sem var sonarsonur Helga landnámsmanns magra og að sögn vígamaður mikill. Hátíðin Víga-Glúmur
fór hins vegar fram í mesta bróðerni. Sveitungar skemmtu sér vel og kepptu í ýmsum þrautum og leikjum áður en
hátíðinni var slitið með söng við varðeld. Hér má sjá myndir sem Karl Frímannsson tók á hátíðinni.