Aðvörun vegna veðurs

Fréttir
Útlit er fyrir vonskuveður þriðjudag og miðvikudag á norðurlandi
Útlit er fyrir vonskuveður þriðjudag og miðvikudag á norðurlandi

Kæru sveitungar við hvetjum alla til að fylgjast vel með færð og veðurspá næstu daga. Foreldrar og forráðamenn barna í leik- og grunnskóla eru sérstaklega beðnir um að vera vakandi fyrir upplýsingum frá skólunum en líklegt má telja að rask verði á skólastarfi og akstri á næstu dögum.

Við hvetjum jafnframt foreldra og forráðamenn til að sækja börn sín snemma heim úr leik- og grunnskóla á þriðjudag svo allir komist öruggir til síns heima. Ef veðurspá rætist er útlit fyrir að verulegt rask geti orðið á samgöngum strax fljótlega uppúr hádegi á þriðjudag.

Við munum uppfæra ykkur um stöðuna hér á vefnum um klukkan 10:30 á þriðjudagsmorgun.