Ákvörðun um skólaakstur og almenningssamgöngur

Á yfirstandandi skólaári hefur verið gerð tilraun með samþættingu skólaaksturs og almenningssamgangna í sveitarfélaginu.
Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri var fengin til að framkvæma könnun meðal heimila í sveitarfélaginu. Á fundi sveitarstjórnar þann 30. apríl s.l. var fjallað um niðurstöður könnunarinnar.

Eftirfarandi bókun var lögð fram af fulltrúum H listans og var hún samþykkt með 4 atkvæðum AÁ, EG, KK og ES. Á móti voru fulltrúar F listans þeir JS, LG og BS.
Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur gert skoðanakönnun þar sem reynt var að hafa samband við öll heimili í sveitarfélaginu og kanna afstöðu þeirra til þeirra breytinga sem gerðar voru á skólaakstri á yfirstandandi skólaári. Breytingarnar voru með þeim hætti að skólaakstri var flýtt og almenningi boðið að nýta sér skólabílana og jafnframt var bætt við ferð frá Hrafnagili til Akureyrar. Boðið hefur verið upp á ferðir frá Akureyri að Hrafnagili um miðjan dag og aftur í lok vinnudags að Hrafnagili og í bæinn aftur.
Ef skoðuð er afstaða til lykilspurninga, sem hafa áhrif á ákvarðanatöku um framhaldið og einungis horft til þeirra sem ákvörðunin hefur áhrif á og taka afstöðu, þá er niðurstaðan þessi:

  • Alls staðar í sveitarfélaginu er mikill meirihluti heimila fylgjandi því að bjóða upp á almennings-samgöngur eða 89% fylgjandi en 11% eru því mótfallin.
  • Um afstöðu til þess að flýta skólaakstri til að samnýta skólaakstur og almenningssamgöngur þá eru 54% heimila sem nýta skólaakstur ánægð með breytinguna en 46% óánægð. Ef skoðuð er afstaða allra þar sem börn koma akandi til skóla þá er afstaðan 51% ánægð og 49% óánægð.
  • Heimili þar sem aðeins eru börn í grunnskóla eru óánægðari með að skólaakstri hafi verið flýtt til að samnýta með almenningssamgöngum, heldur en heimili þar sem eru bæði börn í grunn- og framhaldsskóla. Óánægjan virðist helst vera vegna þess hve börnin þurfa að vakna snemma og hvernig staðið var að ákvarðanatöku í þessu máli.
  • Hafa ber einnig í huga að óánægjan er mun meiri norðan Miðbrautar eða 59% óánægð á móti 41% ánægðum, en sunnan Miðbrautar eru 62% ánægð á móti 38% óánægðra. Norðan Miðbrautar fara skólabílar af stað kl. 7:15 og 7:25, en sunnan Miðbrautar kl. 7:05, 7:10, 7:20 og 7:25.
  • Meirihluti heimila eða 60%, voru á móti því að flýta skólabyrjun til að stytta biðtíma en 40% heimila voru jákvæð gagnvart þeirri breytingu.
  • Um afstöðu til þjónustu í biðtíma þá voru 88% ánægð með morgunverð, 81% ánægð með afþreyingu og 75% ánægð með gæslu sem boðið er upp á í biðtíma.

Samantekið þá er meirihlutinn ánægður með allar þær breytingar sem gerðar hafa verið og ánægjan er mest þar sem breytingar eru mestar, þ.e.a.s. lengst að fara í skóla og í bæinn með almennings-samgöngum og börnin þurfa að vakna fyrst. Ánægjan er síðan meiri hjá þeim sem eiga börn í framhaldsskólum og hafa meiri þörf fyrir almenningssamgöngurnar.
Sveitarstjórn telur að sú aðferð sem valin hefur verið til að bjóða upp á almenningssamgöngur sé sú hagkvæmasta sem völ er á ef gæta á jafnræðis eins og hægt er og veita jafnframt ásættanlega þjónustu. Með því er stuðlað að því að börnin í sveitarfélaginu geti stundað framhaldsnám og búið í heimahúsum sem lengst.
Harmar sveitarstjórn þá andstöðu sem þessi nýjung hefur mætt, en ákvörðun var tekin seint síðastliðinn vetur og kynning og samráð mátti vel vera betra.
Að teknu tilliti til alls þess sem að framan er ritað sér sveitarstjórn ekki ástæðu til að breyta fyrirkomulaginu og að það verði með sama hætti næsta skólavetur þó ætíð megi ræða útfærslur og betrumbætur.

Fulltrúar F listans þeir Jón, Leifur og Björk telja að þróa eigi áframhald almenningssamgangna óháð skólaakstri.