Álagning fasteignagjalda 2013

Eyjafjarðarsveit sendir ekki út álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum.  Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni island.is undir "Mínar síður". Innskráning er með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.  Gjalddagar fasteignagjalda eru  fimm  frá  1. febrúar  til 1. júní.  Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 25.000 er gjalddagi þeirra 1.febrúar.

Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti er reiknuð sjálfkrafa í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og Ríkisskattstjóra og stuðst við síðasta skattframtal. Afslátturinn er færður til lækkunar á fasteignagjöldum á álagningarseðli. 
Upplýsingar um gjaldskrá og afsláttarreglur er hægt að nálgast á
http://www.eyjafjardarsveit.is/is/stjornsysla/gjaldskrar