Fréttayfirlit

Eyjafjarðarsveit skiptir um viðskiptabanka

„Í framhaldi af bókun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar frá   22. mars 2011,  hefur farið fram könnun á þjónustugjöldum viðskiptabanka og sparisjóða á Akureyri og nágrenni. Auk þess hefur verið fundað með núverandi viðskiptabanka Eyjafjarðarsveitar, Arion banka.

Með hliðsjón af  þessari vinnu og niðurstöðu hennar samþykkir sveitarstjórn að ganga til samninga við BYR sparisjóð um  bankaviðskipti sveitarfélagsins og er sveitarstjóra  og skrifstofustjóra falið að ganga frá samningi þar um.

Aftur vill sveitarstjórn þakka starfsmönnum Arion banka á Akureyri fyrir gott samstarf og samskipti til margra ára en sú staða sem uppi er nú varðandi launaþróun og stefnu bankans er að mati sveitastjórnar óásættanleg og er það yfirstjórnar bankans að taka á því máli.

04.05.2011

Góði dátinn Svejk valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Góði dátinn Svejk var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin á landinu á þessu leikári.  Af því tilefni er Freyvangsleikhúsinu boðið að setja sýninguna upp í Þjóðleikhúsinu í lok þessa mánaðar.

Þetta er í fjórða skiptið sem Freyvangsleikhúsinu hlotnast þessi titill og sýnir það glöggt hve miklu er hægt að áorka með brennandi áhuga og dugnaði fólksins í félaginu.

Sveitarfélagið óskar Freyvangsleikhúsinu innilega til hamingju með árangurinn.


Brynjar Gauti schiöth
02.05.2011