Fréttayfirlit

Kynning á frummatsskýrslu um Þverárnámu

Framkvæmdaraðili stendur fyrir opnu húsi í Golfskálanum að Þverá, Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 12. mars 2013, kl. 17:00-18:00.
12.03.2013

Frummatsskýrsla - Þverárnáma

Verkfræðistofa Norðurlands ehf hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Þverárnámu í Eyjafjarðarsveit. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 6. mars til 17. apríl 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu og bókasafni Eyjafjarðarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu verkfræðistofu Norðurlands.
07.03.2013

Handverkshátíð 2013 - búið að opna fyrir umsóknir

Nú gefst handverksfólki og hönnuðum kostur á að sækja um sölubás á Handverkshátíð 2013. Hægt er að sækja um sem einstaklingur eða hópur. Umsóknarfresturinn rennur út 15. apríl n.k. Vinsamlega fyllið út umsóknareyðublað hátíðarinnar sem er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.
05.03.2013

Fundarboð; 430. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

430. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, miðvikudaginn 6. mars 2013 og hefst kl. 12:00
04.03.2013

Siðareglur samþykktar

Á fundi sínum 14. febrúar s.l. samþykkti sveitarstjórn siðareglur fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur Eyjafjarðarsveitar.
20.02.2013

Grunnskólakennarar

Í Hrafnagilsskóla er nú auglýst eftir grunnskólakennurum tímabundið í afleysingastöður. Annars vegar umsjónarkennarastöðu á yngsta stigi fram til áramóta og hins vegar stöðu kennara á unglingastigi í apríl og maí. Ráðið er frá 15. mars 2013.
19.02.2013

Öskudagurinn 2013

Mörg börn lögðu leið sína á skrifstofuna í dag m.a. til að syngja í von um að fá góðgæti að launum. Voru búningar þeirra eins skrautlegir og þau voru mörg. Nokkrar myndir voru teknar af þessum duglegu krökkum ásamt nokkrum fullorðnum sem slæddust með.
13.02.2013

Síminn flýtir uppbyggingu Ljósnets á landsbyggðinni

Síminn hefur ákveðið að setja upp Ljósnet á 53 þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni á árinu. Meðfylgjandi bréf barst Jónasi Vigfússyni í byrjun febrúar frá Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Símans.
11.02.2013

Atvinna - Umsjónarmaður Smámunasafns Sverris Hermannssonar

Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða umsjónarmann Smámunasafns Sverris Hermannssonar. Um er að ræða fullt starf yfir sumartímann, en hlutastarf á öðrum tímum. Umsóknarfrestur um starf þetta er til og með 28. febrúar. Umsóknir skulu vera skriflegar og þeim fylgi upplýsingar um menntun og starfsreynslu. Umsóknir sendist á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar Skólatröð 9, 601 Akureyri. Nánari upplýsingar veitir Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í síma 463 0600.
11.02.2013

Fundarboð 429. fundar sveitarstjórnar, 13. febrúar 2013

429. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar sem halda átti 6. febrúar í fundarstofu 1, Skólatröð 9, kl. 12:00 er frestað til miðvikudagsins 13. febrúar n.k. vegna forfalla.
07.02.2013