Fréttayfirlit

Frá Norðurorku: Hitaveiturof í Eyjafjarðarsveit 15.11.2016

Vegna tengingar á vararafstöð á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit verður lokað fyrir heitt vatn í Vesturveitu, frá Botni að Ysta-Gerði og í Laugalandsveitu, frá Tjarnagerði að Sámsstöðum, þriðjudaginn 15.11.2016, kl. 9:00 - 12:00, eftir það verða tímabundnar truflanir fram eftir degi.
14.11.2016

Fundarboð 488. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 488. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, 16. nóvember 2016 og hefst kl. 15:00
11.11.2016

Leiðsögn í hlaupatækni með einum fremsta utanvegahlaupara heims

Laugardaginn 12. nóvember kl. 14.00-15.00 við íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar mun Þorbergur Ingi Jónsson ofurhlaupari fara yfir grunnatriði í hlaupastíl með aðaláherslu á hagkvæmni. Hvernig á að hlaupa þannig að álag á hné og bak sé í lágmarki, hlaupastíllinn verði hagkvæmari og hlauparar eiga auðveldara með að auka hraðann. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
11.11.2016

Auglýst er eftir umsóknum í Afreksmannasjóð UMSE

Tilgangur sjóðsins er að styrkja einstaklinga eða hópa, innan UMSE, sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni. Umsóknarfrestur í sjóðinn er til og með 1. desember n.k. og verður úthlutað úr sjóðunum 15. desember.
03.11.2016

Fundarboð 487. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

487. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, 26. október 2016 og hefst kl. 15:00
24.10.2016

Laus staða skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar

Auglýst er eftir skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar til starfa fyrir Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Umsóknarfrestur er til 1.nóvember 2016 og sendast umsóknir á netfangið olafur@esveit.is.
20.10.2016

Kjörskrá vegna alþingiskosninga 29. október 2016

Kjörskrá fyrir Eyjafjarðarsveit, vegna alþingiskosninga 29. október 2016, liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9 til kjördags, á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar, sem er frá kl. 10:00-14:00.
19.10.2016

Kjörfundur vegna alþingiskosninga 29. október 2016

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00. Þeir sem eiga erfitt með gang mega aka að inngangi skóla.
19.10.2016

Tjarnavirkjun í Eyjafjaðrarsveit - breyting á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags

Skipulags- og matslýsing: Unnið er að breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005-2025 og gerð deiliskipulags fyrir Tjarnavirkjun í Eyjafjarðarsveit. Skipulags- og matslýsing mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 12. október 2016 til og með 26. október 2016.
12.10.2016
Aðalskipulagsauglýsingar

Tilkynning um borlok Norðurorku

Eins og íbúar Eyjafjarðarsveitar hafa sjálfsagt tekið eftir hefur jarðborinn NASI frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða verið að störfum á svæðinu frá því í maí sl. Nú hefur borun verið hætt í 1.905 metra dýpi og bor og bormenn farnir af svæðinu.
07.10.2016