Fréttayfirlit

Sundlaugin lokar kl. 16:00 laugardaginn 26. febrúar

Á morgun, laugardaginn 26. febrúar, verður sundlaugin lokuð fyrir almenning frá kl. 16:00, þar sem laugin verður í útleigu eftir þann tíma. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Kveðja, forstöðumaður
25.02.2022
Fréttir

Lærðu að sækja um styrk

Kynningarfundur og einstaklingsráðgjöf Rannís og SSNE SSNE í samstarfi við RANNÍS standa fyrir rafrænum kynningarfundi þriðjudaginn 1. mars nk. frá kl 10.00 -11.30 Styrkumsóknarskrif á mannamáli! Á kynningarfundinum verður meðal annars farið yfir: • Hvaða sjóðir eru í boði hjá RANNÍS og fyrir hverja og fyrir hvaða verkefni eru þeir? • Umsóknarferlið og hvað þarf að hafa í huga. • Sögur af verkefnum sem hafa fengið styrk – og ekki – sem sýnir allt sviðið og hversu verkefni geta verið ólík og úr ýmsum áttum. • Mikilvæga punkta og atriði sem geta valdið formkröfufalli og er allt of algengt að gerist. • Alla styrktarflokkana á vegum Tækniþróunarsjóðs. Kynningarfundurinn verður streymt á Facebook og á Zoom. Hlekkur á Facebook viðburð: https://www.facebook.com/events/1070469643809684/?ref=newsfeed Hlekkur fyrir Zoom: https://us02web.zoom.us/j/88570588915 Athugið að boðið verður upp á einstaklingsráðgjöf frá Rannís og SSNE sama dag í eigin persónu á Akureyri eða með rafrænum hætti frá 12.30 - 17.00. Nauðsynlegt er að panta tíma hjá Rebekku Kristínu á netfangið rebekka@ssne.is Bóka einstaklingsráðgjöf Þá býður Rannís og SSNE aftur upp á einstaklinsráðgjöf í eigin persónu á Akureyri eða með rafrænum hætti þann 11. Mars frá kl 9.00-15.00 Bóka einstaklingsráðgjöf Við hvetjum alla þá sem ganga með hugmynd í maganum að nýta sér þetta frábæra tækifæri! Þátttaka og ráðgjöf er að kostnaðarlausu. ________________________________________ Learn to apply for grants Online workshop and Private consultation SSNE, The Association of Municipalities in Northeast Iceland in collaboration with Rannís, are now offering both a workshop (in Icelandic) and private consultation (in Icelandic or English) with the aim of increasing the number of grant applications from Northeast Iceland as well as improving the success rate but Rannis has several large funds that regularly advertise for applications. Online workshop (in Icelandic): - Overview of various grant categories - For whom are the grants available for? - What kind of projects receive grants? - Application process - Important points to keep in mind and avoid when writing applications Here is a link to the online event on Facebook: https://fb.me/e/18LUHzgFs Here is a link for Zoom: https://us02web.zoom.us/j/88570588915 SSNE and a consultant from Rannís will be available for private consultation in Akureyri or online from 12.00 am- 17.00 pm, where applicants get to ask questions concerning their own project and applications. The same will be available again on March 11. Online 1-on-1 consultation is available to those that can´t attend in person in SSNE´s offices in Akureyri. To reserve space in private consultations, please email with preferred time slot on either 1 March (from 13.00 – 17.00) or 11 March (09.00 – 15.00) to rebekka@ssne.is We hope that entrepreneurs in the region make the most of this opportunity. Feel free to forward this invitation on to other entrepreneurs you may know. __________________________________________________________________________________________
25.02.2022
Fréttir

Sumarstörf hjá Eyjafjarðarsveit. Erum við að leita að þér?

Ert þú hress og skemmtileg/ur, hefur áhuga á ferðaþjónustu og elskar að vera úti? Setur þú öryggið á oddinn og hefur góða þjónustulund? Hefur þú áhuga á umhverfinu og langar að vinna úti í sumar? Endilega kíktu á störfin sem eru í boði og vertu í sambandi ef þú sérð eitthvað spennandi
23.02.2022
Fréttir

Leikskólinn Krummakot

Minnum á innritun í leikskólann fyrir haustið 2022. Tökum við umsóknum til 13. apríl 2022. Endilega sendið inn umsóknir í tíma.
22.02.2022
Fréttir

Bókasafn Eyjafjarðarsveitar

Í næstu viku er safnið lokað vegna vetrarleyfis í skólanum Föstudagurinn 25. febrúar er síðasti opnunardagur fyrir vetrarleyfi. Við opnum aftur þriðjudaginn 8. mars. Venjulega er opið á safninu: Þriðjudaga frá 14:00-17:00 Miðvikudaga frá 14:00-17:00 Fimmtudaga frá 14:00-18:00 Föstudaga frá 14:00-16:00 Á safninu er fjöldi bóka, tímarita og upplýsingaefnis, bæði til útláns, lestrar og skoðunar á staðnum. Komið við á bókasafninu og kynnið ykkur hvað þar er að finna. Bókasafnið er staðsett í kjallara íþróttahúss Hrafnagilsskóla og er gengið inn að austan. Ekið er niður með skólanum að norðan. Einnig er hægt að nota sundlaugarinnganga og fara niður í kjallara þaðan.
22.02.2022
Fréttir

Fundarboð 582. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar - 582 FUNDARBOÐ 582. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, 24. febrúar 2022 og hefst kl. 8:00.
22.02.2022
Fréttir

Deiliskipulag Hrafnagilshverfis – kynningartímabil framlengt.

Ákveðið hefur verið að kynningartímabil deiliskipulagstillögu á vinnslustigi fyrir Hrafnagilshverfi skuli framlengt um tvær vikur til 4. mars 2022. Deiliskipulagstillagan mun liggja frammi á sveitarskrifstofunni og vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is, meðan á kynningartímabilinu stendur.
18.02.2022
Fréttir

Hlekkur á fund um aðal-og deiliskipulagstillögu Hrafnagilshverfis

Hér má nálgast hlekk á kynningarfund um aðal- og deiliskipulagstillögu Hrafnagilshverfis. Hlekkur á fund https://us02web.zoom.us/j/88437644333
15.02.2022
Fréttir

Útboð - Hrafnagilsskóli viðbygging fyrsti áfangi

Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla. Um er að ræða steypu sökkla og botnplötu ásamt lagnavinnu.
10.02.2022
Fréttir

Upplýsingar um sorphirðu

Veður og færð hefur haft áhrif á okkur þessa vikuna auk þess sem Covid er á hraðri uppleið á svæðinu sem hefur áhrif á ýmsa starfsemi. Terra hefur ekki farið varhluta af þessu og eru þau að vinna í sorplosun sem hefur tafist af þessum orsökum.
09.02.2022
Fréttir