Arnarholt í Leifsstaðabrúnum - deiliskipulag

Í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar, 10. desember 2010, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi 4 frístundalóða á Arnarholti, skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Arnarholt er 1,34ha. spilda í Leifsstaðabrúnum.

Tillagan er í samræmi við aðalskipulag.
Skipulagið ásamt greinargerð sést með því að smella hér og er einnig til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 23. febrúar 2011.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
12. janúar 2011
Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar