Árshátíð miðstigs 2015

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 19. mars og hefst kl. 20:00.
Boðið verður upp á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af Kardemommubænum eftir Thorbjörn Egner.
Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan verður stiginn dans og mun Elín Halldórsdóttir stjórna honum eins og henni er einni lagið. Skemmtuninni lýkur kl. 22:30.

Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir grunnskólanemendur, 1.400 kr. fyrir eldri og frítt fyrir þá sem hafa ekki náð grunnskólaaldri. Allur ágóði rennur til nemenda, bæði til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Athugið að ekki er posi á staðnum. 

Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla