Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2013 var tekin til síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar 30. apríl

Rekstur Eyjafjarðarsveitar  gekk vel á árinu 2013 og var rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði um 41,5 milljónir sem er um 5,3 % af tekjum. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var afgangur af rekstri sveitarfélagsins  um 31,5 milljónir eða  4,1 % af tekjum.

Kennitölur úr rekstri sveitarfélagsins bera vott um mjög trausta stöðu.  Veltufé frá rekstri er 64,2 milljónir sem eru um 8,3% af rekstrartekjum. Eigið fé nemur 636.4 milljónum og er eiginfjárhlutfall 66,4%. Skuldaviðmið er 41,4 % sem er langt  innan þess 150 % hámarks sem kveðið er á um í lögum.

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 426,7 milljónir á árinu 2013 eða 64,6%  af skatttekjum.  Íþrótta- og tómstndamál  er næst stærsti málaflokkurinn  en til þeirra mála var varið um 78,8 milljónum eða 11,9% af skatttekjum.

Um 27,9 milljónum var varið í fjárfestingar  á árinu 2013.   Ekki voru tekin ný lán á árinu 2013 en eldri lán voru greidd niður um 27,6 m.kr.

Reikningurinn var samþykktu samhljóða.

Ársreikningar 2013