Atvinna

Fréttir

Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar óskar eftir að ráða konu til starfa í vaktavinnu.

Um er að ræða afleysingu í eitt ár. Starfshlutfall er 100%, en einnig kemur til greina að ráða 2 í hlutastarf.

Í starfinu felst m.a. sundlaugargæsla, afgreiðsla, þrif og baðvarsla. Starfsmenn íþróttamiðstöðvar sinna einnig verkefnum á tjaldsvæði á opnunartíma þess.

Viðkomandi verður að vera orðinn 18 ára, hafa hreint sakavottorð og geta staðist hæfnispróf sundstaða. Í starfi sundlaugarvarðar er nauðsynlegt að hafa athyglisgáfu í lagi, eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt við ef slys ber að höndum. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund, stundvísi og jákvæðni.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2022.

Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.

Tekið er á móti umsóknum á netfangið sundlaug@esveit.is.

Nánari upplýsingar um starfið og fyrirkomulag vakta gefur Erna Lind í síma 895-9611.