Atvinna - Skólaliði

Fréttir

Skólaliði 

Inn í öflugan og skemmtilegan starfsmannahóp Hrafnagilsskóla vantar skólaliða í 90% starf. Ráðið er í starfið út skólaárið og möguleiki á fastráðningu í framhaldi. Best væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Leitað er eftir starfsmanni sem:
• Sýnir metnað í starfi.
• Er fær og lipur í samskiptum.
• Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Getur leyst mál í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.

Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur í síma 464-8100 eða í gegnum netpóst.

Hrund Hlöðversdóttir, hrund@krummi.is og Björk Sigurðardóttir, bjork@krummi.is.