Auglýst eftir fólki í ritnefnd Eyvindar

Fréttir

Velferðar- og menningarnefnd auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í ritnefnd Eyvindar. 

Eyvindur er gefinn út í desember ár hvert á vegum velferðar- og menningarnefndar og dreift frítt á öll heimili í sveitarfélaginu.

Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við formann nefndarinnar, Berglindi Kristinsdóttur í síma 693-6524 eða í tölvupósti berglind@esveit.is, ekki síðar en föstudaginn 9. september.