Bæjakeppni Hestamannafélagsins Funa

Bæjakeppni Funa verður haldin á Melgerðismelum sunnudaginn 26. ágúst.  Skráning verður á staðnum milli kl. 13:00-13:30.  Keppni hefst kl. 14:00.  Keppt verður í flokki polla, barna, unglinga, ungmenna, karla og kvenna.  Einnig verða fetkappreiðar í flokki polla, barna og unglinga (100 m) og brokkkappreiðar í flokki ungmenna, karla og kvenna (250 m).  Allir flokkar verða opnir og viljum við hvetja allt reiðfært fólk til að taka þátt.  Kaffisala verður á staðnum.  Íbúar Eyjafjarðarsveitar hafa verið duglegir að styrkja hestamannafélagið með þátttöku sinni í Bæjakeppninni og viljum við þakka fyrir það sérstaklega. 
Stjórn Funa