Eyfirski safnadagurinn – Söfn fyrir börn

Hvorki fleiri né færri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 7. maí frá kl 11-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í fimmta sinn. Safnadagurinn er að þessu sinni tileinkaður börnum.

Söngvar, sýningar, leikir, listasmiðja, leikföng, dúkkur, dúkkulísur, flugvélar, fuglar, þorskhausar, hákarl, ratleikir og gamaldags bú er meðal þess sem gestir safnanna, stórir og smáir heyra, upplifa, taka þátt og njóta á EYFIRSKA SAFNADAGINN. Markmið safnadagsins er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð.

Söfn fyrir börn í Eyjafirði
Eftirfarandi söfn verða opin frá 11-17. Enginn aðgangseyrir er á EYFIRSKA SAFNADAGINN: Amtsbókasafnið, Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Leikfangasýning Friðbjarnarhúsi Akureyri,  Listagilið : sýning í Gallerý Boxi,  Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Gamli bærinn Laufás, Holt – hús Öldu Halldórsdóttur í Hrísey,  Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey, Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit, Útgerðarminjasafnið á Grenivík og Þjóðlagasetrið  á Siglufirði.

Rútuferðir á söfnin
Rútuferðir verða á söfnin við Eyjafjörð.  Safnarúta 1: fer frá Akureyri kl 10 með viðkomu á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík, Náttúrgripasafni Ólafsfjarðar, Síldarminjasafni Íslands og Þjóðlagasetri sr Bjarna Þorsteinssonar. Safnarúta 2: fer frá Akureyri kl 12:30 í Útgerðarminjasafnið á Grenivík og í Gamla bæinn Laufás.
Áhugasömum er bent á vefsíðuna www.sofn.is þar sem finna má nánari upplýsingar um það sem um er að vera þennan dag og brottfararstað safnarútanna tveggja.
Menningarráð Eyþings styrkir Eyfirska safnadaginn!