Eyfirski safnadagurinn vel sóttur

Hörður Geirsson segir frá á Minjasafni Akureyrar
Hörður Geirsson segir frá á Minjasafni Akureyrar

Það voru margir sem gerðu sér glaðan dag, síðastliðinn laugardag, þegar EYFIRSKI safnadagurinn var haldinn í sjöunda sinn.  Söfnin fengu hátt í 3000 heimsóknir.  Það er því greinilegt að íbúar í Eyjafirði og ferðafólk kann vel að meta það að geta farið á milli forvitnilegra og fróðlegra safna í Eyjafirði.  Sögulegt fólk var þema dagsins. Margir nýttu sér því þann fróðleik sem í boði var og kynntust fólki eins og Vilhelmínu Lever, Arthuri Gook, Sverri Hermannsyni, Agnari Kofoed Hansen, Stefáni Stefánssyni, Heidda, Sigríði Jónsdóttur, Óskari Halldórssyni, hjónunum frá Kleifum, Matthíasi, Jóhanni  Svarfdæling, Davíð og amtmanninum ásamt Jónum og Jónösum sem settu svip á samtíð sína. Samsýning safnanna í Eyjafirði „ Komið – skoðið“ sem opnuð var á eyfirska safnadaginn hefur nú þegar fengið mikla athygli og mun standa í Leyningi í Hofi til 22. ágúst.

Mynd: Minjasafnið á Akureyri. Fróðleiksþyrstir gestir hlusta á Hörð Geirsson segja frá Arthuri Gook frumkvöðli á Akureyri.