Eyrarland, Eyjafjarðarsveit, auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu

Fréttir Aðalskipulagsauglýsingar Deiliskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 22. september 2022 sl. að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í landi Eyrarlands í auglýsingu skv. 31. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagstillögunni felst að byggingarheimildir á íbúðarsvæði ÍB14, þar sem í gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir 10 íbúðarhúsum, eru auknar í 15 hús. Deiliskipulagstillagan tekur til tíu íbúðarlóða á íbúðarsvæði ÍB14, á spildu austan Veigastaðavegar og sunnan íbúðarbyggðarinnar Kotru.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 25. nóvember 2022 og 6. janúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til föstudagsins 6. janúar 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Greinargerð

Deiliskipulagsuppdráttur

Breyting á aðalskipulagi

Skipulagsfulltrúi