Fékk styrk frá Matvælasjóði Íslands og kannar nú áhuga á þátttöku í deilieldhúsi

Fréttir
Einar Örn Aðalsteinsson ásamt eiginkonu sinni Sesselíu Ingibjörgu Barðdal (eigendur Kaffi Kú).
Einar Örn Aðalsteinsson ásamt eiginkonu sinni Sesselíu Ingibjörgu Barðdal (eigendur Kaffi Kú).

Einar Örn Aðalsteinsson fékk á dögunum styrk frá Matvælasjóð Íslands til að kanna rekstrarforsendur og kostnaðargreina uppsetningu deilieldhúss og er fyrsta skref þess að kanna þörf og á huga á aðstöðunni.

Í könnun Einars kemur fram að á teikniborðinu sé að opna full vottað deilieldhús (vinnslueldhús) í Eyjafjarðarsveit þar sem matvælafrumkvöðlum, félagasamtökum, veitingaaðilum, frumframleiðendum og bara öllum þeim sem áhuga hafa á, gefst kostur á að þróa og framleiða sína vöru í vottaðri aðstöðu með möguleika á aðstoð fagfólks. Deilieldhúsið er opið öllum, vönum og óvönum en til að komast inn þarf að bóka tíma og útskýra hvað á að vinna við en boðið verður uppá aðstoð fagfólks ef vilji er á.

Þurfa þeir aðilar sem vilja framleiða og gera tilraunir í deilieldhúsinu að sitja inntökunámskeið þar sem farið er yfir uppbyggingu vinnslurýmis, starfsreglur, smitvarnir, ofnæmisvalda, bókunarkerfi og almennt hvað fellst í að starfa í deilieldhúsi.

Eldhúsið verður búið öllum þeim tækjum sem til þarf við margskonar vinnslu en vottuð aðstaða er grundvöllur þess að koma vöru á markað.

Könnunina má nálagst hér