Forsetakosningar 30. júní 2012

Bessastaðir. Mynd: www.forseti.is
Bessastaðir. Mynd: www.forseti.is


Kjörfundur
Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit vegna forsetakosninganna 30. júní 2012 verður í Hrafnagilsskóla.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. 
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt. Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464 8100 eða 899 4935.
Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit, 20. júní 2012.
Emilía Baldursdóttir, Níels Helgason, Ólafur Vagnsson.


Kjörskrá
Kjörskrá fyrir Eyjafjarðarsveit vegna forsetakosninganna 30. júní 2012 liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9, frá og með 20. júní 2012 til kjördags. Opnunartími skrifstofu er 10:00 – 14:00
Á veffanginu http://www.kosning.is/forsetakosningar/kjorskra/ má fá nánari upplýsingar um kjörskrá og kosningarnar.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar.