Forsetinn gestur Handverkshátíðar og Landbúnaðarsýningar

Forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson og eiginkona hans Eliza Reid munu verða gestir Handverkshátíðar og Landbúnaðarsýningar á Hrafnagili föstudaginn 5. ágúst. Hátíðin verður sett á morgun fimmtudag klukkan 12.00 en forsetahjónin verða gestir hátíðarinnar upp úr hádegi á föstudag.

Hátíðin sem nú er haldin í 24. sinn er að venju fjölbreytt þar sem handverksfólk alls staðar að af landinu sýnir handverk sitt en um sölusýningu er að ræða. Að þessu sinni er einnig landbúnaðarsýning á Hrafnagili og því ljóst að allir fjölskyldumeðlimir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á sýningarsvæðinu. Teymt verður undir börnum alla dagana, húsdýr verða til sýnis auk þess sem á laugardag verður boðið upp á listasmiðju fyrir börn. Þá er hið rómaða kaffihús Samherja og björgunarsveitarinnar Dalbjargar á sínum stað. Spáin er góð og ljóst að það er vel þess virði að fá sér bíltúr inn í Eyjafjörð um helgina.