Fræðsla fyrir íþróttafólk

UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Hrafnagili þriðjudaginn 2. desember.
Fyrirlestrarnir eru ætlaðir íþróttafólki, 11 ára og eldri. Þeir fara fram í Hrafnagilskóla og hefjast kl. 17:00 og 18:15. Stutt hlé verður á milli þeirra og boðið upp á léttar veitingar.
Ekkert þátttökugjald er að fyrirlestrinum og eru foreldrar sérstaklega velkomnir.

Heilbrigður lífsstíll
Kl. 17:00 fjallar Sonja Sif Jóhannsdóttir, íþróttafræðingur, um heilbrigðan lífsstíl:
• Mikilvægi þess að borða hollt og vel.
• Mikilvægi svefns.
• Mikilvægi hvíldar til að ná árangri í íþróttum og lifa heilbrigðu lífi.
• Mikilvægi vatnsneyslu.
• Muninn á orkudrykkjum og íþróttadrykkjum.
• Jákvæð hugsun.

Markmiðasetning
Kl. 18:15 fjallar Ellert Örn Erlingsson, íþróttasálfræðingur og forstöðumaður íþróttamála á Akureyri, um markmiðasetningu íþróttafólks:
• Hvað er markmiðssetning?
• Til hvers markmiðssetning?
• Árangursrík markmiðssetning!