Fræðsla fyrir íþróttafólk og foreldra

Fræðsla fyrir íþróttafólk

UMSE mun standa fyrir fræðslufyrirlestrum á Hrafnagili þriðjudaginn 24. nóvember.

Fræðslan fer fram í Hrafnagilsskóla og er ætluð íþróttafólki, 11 ára og eldri. Ekkert þátttökugjald er á fyrirlestrana og eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir. 

Að vera afreksmaður

Kl. 17:00. Ragnheiður Runólfsdóttir, íþrótta-lífeðlisfræðingur M.sc., sundþjálfari og fyrrum landsliðsmaður í sundi mun fjalla um hvað það er að vera afreksmaður í íþróttum út frá reynslu sinni sem iðkandi og þjálfari.

 Íþróttameiðsl

Kl. 18:00. Hannes Bjarni Hannesson, sjúkraþjálfari B.sc. hjá Eflingu ehf., mun fjalla um íþróttameiðsl, en leggja áherslu á forvarnir gegn meiðslum í íþróttum og fyrstu viðbrögð við meiðslum. 

 Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UMSE

Ungmennasamband Eyjafjarðar
Búgarði, Óseyri 2
603 Akureyri
Sími. 460-4477, 460-4465
Fax: 460-4478
GSM: 868-3820
umse@umse.is
www.umse.is