Grunnskólakennari

Óskum eftir að ráða grunnskólakennara að Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Um er að ræða umsjónarkennarastöðu á yngsta stigi. Ráðið er frá 1. ágúst 2014.
Í Hrafnagilsskóla er stuðst við kennsluaðferðirnar Byrjendalæsi og Orð af orði á yngsta stigi.
Leitað er eftir kennara sem:
• Sýnt hefur árangur í starfi.
• Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
• Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
• Vinnur í góðri samvinnu við foreldra og allt starfsfólk.
• Er fær og lipur í samskiptum.
• Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til 21. maí 2014.


Nánari upplýsingar veitir Hrund Hlöðversdóttir skólastjóri í símum 464-8100 og 699-4209 eða á netfangið, hrund@krummi.is.
Heimasíða Hrafnagilsskóla er http://www.krummi.is/