Handverkshátíð 2013 - Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl n.k.

Handverksfólki og hönnuðum gefst kostur á að sækja um sölubás á Handverskhátið 2013. Nú þegar hefur fjöldi umsókna borist.
Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl n.k. Vinsamlega fyllið út umsóknareyðublað hátíðarinnar sem er að finna á heimasíðu hennar og/eða hér fyrir neðan.

http://www.handverkshatid.is/page/umsoknarform

Umsókninni skal fylgja:
4 myndir í góðum gæðum af vörunum sem selja á.

Umsókn og myndir skal senda á handverk@esveit.is

Þegar umsókn hefur verið móttekin færðu senda staðfestingu á því í tölvupósti.
Sýnendur Handverkshátíðar verða tilkynntir 15. maí.
Öllum umsóknum verður svarað.