Hvert er einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar?

Á fundi sveitarstjórnar 27. mars s.l. var samþykkt tillaga skipulagsnefndar um að gera skoðanakönnun til að kanna hug íbúa Eyjafjarðarsveitar um hvert sé einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar. Spurningin vaknaði því Bókaútgáfan Tindur vinnur um þessar mundir að bók sem heitir Íslensk bæjarfjöll.

Það er því ósk okkar að hvert heimili komi sér saman og sendi sína tilnefningu um einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar.

Könnuninni, sem fylgdi auglýsingablaðinu 4.04.13, má skila með því að skrifa nafn fjallsins á blaðið og senda á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, t.d. með því að setja í póstkassa við skrifstofudyrnar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið esveit@esveit.is