Íslenski safnadagurinn sunnudaginn 7. júlí 2013

Ungir og áhugasamir gestir á Minjasafninu á Ak.
Ungir og áhugasamir gestir á Minjasafninu á Ak.

Íslenski safnadagurinn er næstkomandi sunnudag þann 7. júlí. Söfn um allt land taka þátt með einum eða öðrum hætti þátt í deginum.
Minjasafnið á Akureyri býður uppá leiðsögn kl. 14:00 og 15:00 þennan dag um sumarsýningu safnsins Norðurljós- næturbirta norðursins. Sýningin samanstendur af málverkum og ljósmyndum. Málverkin eru eftir danska málarann Harald Moltke.  Hann var í hópi vísindamanna frá  dönsku veðurstofunni sem kom gagngert til Akureyrar 1899 til að rannsaka norðurljósin. Ljósmyndirnar tók áhugaljósmyndarinn Gísli Kristinsson frá Ólafsfirði á síðasta ári.
Í Gamla bænum Laufási verður boðið uppá leiðsögn um bæinn kl. 14:00. Áhugasamir gestir geta smakkað grasate og starfsfólk Pólarhesta munu teyma undir yngstu gestunum milli kl. 14:00 og 16:00. Skáldahúsin þrjú á Akureyri Nonnahús. sem tileinkað er barnabókarithöfundinum Jóni Sveinssyni - Nonna, Sigurhæðir, hús þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar og Davíðshús, hús hins ástsæla skálds og rithöfundar Davíðs Stefánssonar, verða opin þennan dag. Benda má á að opnunartími í Davíðshúsi og Sigurhæðum er frá kl. 13:00-17:00, í Laufási kl. 9:00-17:00 og Minjasafninu og Nonnahúsi kl. 10:00-17:00.
Frítt er á þessi söfn í tilefni dagsins.
 
 
Gaman er að benda á að Sjónlistamiðstöðin er einnig með frítt inn og eftirfarandi söfn í Eyjafirði eru með 2 fyrir 1 af aðgangseyri:
Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi, Akureyri
Hús Hákarla–Jörundar, Hrísey
Mótorhjólasafn Íslands, Akureyri
Byggðasafnið Hvoll, Dalvík
Náttúrusetrið Húsabakka, Svarfaðardal
Útgerðarminjasafnið á Grenivík
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Eyjafjarðarsveit
 
Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 1997 að frumkvæði safnmanna sjálfra. Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar og þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar sem finna má á söfnum.
Það kennir að venju ýmissa grasa þennan dag á söfnunum í landinu en upplýsingar um dagskrá þeirra má nálgast á facebook síðu íslenska safnadagsins, http://www.safnmenn.is/ og http://www.safnabokin.is/.
 
Meðfylgjandi mynd er tekin af ungum áhugasömum gestum á Minjasafninu á Akureyri.