Kjörfundur vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Þeir sem eiga erfitt með gang mega aka að inngangi skóla.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.
Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 899-4935.

Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit 15. apríl 2013; Emilía Baldursdóttir, Ólafur Vagnsson, Níels Helgason

Kjörskrá vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
Kjörskrá fyrir Eyjafjarðarsveit, vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013, liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9 til kjördags, á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar, sem er frá kl: 10:00-14:00. Einnig er bent á vefinn www.kosning.is en þar er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar um hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar 10. apríl 2013