Kjörskrá vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013

Kjörskrá fyrir Eyjafjarðarsveit, vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013, liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9  til kjördags, á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar, sem er frá kl: 10:00-14:00. Einnig er bent á vefinn http://www.kosning.is/ en þar er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar um hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar 10. apríl  2013