Kvennahlaup ÍSÍ 2017

Kvennahlaupið fer fram sunnudaginn 18. júní kl. 11.00.
Upphitun hefst stundvíslega kl. 10.30 fyrir framan Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar. Í boði verður að hlaupa 2,5 og 5 km.
Hlaupið verður á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis. Hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál. Við hvetjum því allar konur til að mæta í Kvennahlaupið og njóta þess að hreyfa sig, hver á sínum hraða og forsendum.

Skráning í hlaupið hefst í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar fimmtudaginn 15. júní. Verð á bolum er 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri og 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri.

Vonumst til að sem flestar konur og karlar taki daginn frá og hlaupi með okkur.

Frítt í sund fyrir þátttakendur að hlaupi loknu.