Kynningarfundum í Borgarnesi, Húnavatnshreppi, Reykjadal og á Egilsstöðum frestað

Fréttir

Kynningarfundum umhverfis- og auðlindaráðherra um Hálendisþjóðgarð, sem halda átti í Borgarnesi og Húnavatnshreppi í dag og í Reykjadal og á Egilsstöðum á morgun er frestað vegna veðurs. Nýjar tímasetningar fyrir fundina verða auglýstar á næstu dögum. 

Eftirtöldum fundum hefur verið frestað:

Þriðjudagurinn 7. janúar
13:30 Borgarnes, Hótel Hamar - FRESTAÐ
17:30 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli - FRESTAÐ

Miðvikudagurinn 8. janúar
11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri - FRESTAÐ
18:00 Egilsstaðir, Hótel Hérað - FRESTAÐ

Gert er ráð fyrir að tímasetningar standist fyrir fundi sem auglýstir hafa verið í Öræfum, á Hvolsvelli og í Reykjavík.

Nánari upplýsingar er að finna á viðburðum fyrir fundina á Facebook-síðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.